Sara Sif Helgadóttir (Sævar Jónasson)
Sara Sif Helgadóttir markvörður Hauka átti eina af flottustu stoðsendingum síðustu umferðar í Olís-deild kvenna er hún sendi boltann yfir nánast allan völlinn á Rakel Oddný Guðmundsdóttur sem skoraði eitt af mörkum sínum í sigri Hauka gegn ÍR. Haukar unnu leikinn með einu marki 23-22 en liðin verða í eldlínunni í dag í 16.umferð Olís-deildar kvenna. Haukar fara í heimsókn á Hlíðarenda og mæta þar toppliði Vals klukkan 15:00 í stórleik Olís-deildarinnar. Valur er með 26 á toppi deildarinnar á meðan Haukar eru með 17 stig í 3.sæti deildarinnar, stigi meira en ÍR sem er í 4.sæti. Handboltahöllin sem sýnd er öll mánudagskvöld í Sjónvarpi Símans vakti athygli á ótrúlegu marki Hauka í sigrinum gegn ÍR í síðustu viku.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.