Matea Lonac (Egill Bjarni Friðjónsson)
Útlit er fyrir að Matea Lonac markvörður KA/Þórs í Olís-deild kvenna leiki ekki meira með liðinu á þessu tímabili eftir þungt högg sem fékk í leik gegn Val í janúar er hún hljóp á markstöngina. Matea hefur ekkert leikið með KA/Þór eftir atvikið en Jónatan Magnússon þjálfari liðsins sagði í samtali við Handkastið ekki reikna með henni á þessu tímabili. ,,Eins og staðan lítur út núna þá reiknum við ekki með því að hún spili meira á þessu tímabili. Hún var veik fyrir eftir að hafa fengið höfuðhögg áður svo hún þarf tíma. Þetta er mikil blóðtaka fyrir okkur en við munum þó taka stöðuna reglulega en akkúrat núna þá reiknum við ekki með henni," sagði Jónatan Magnússon þjálfari nýliða KA/Þórs í Olís-deild kvenna sem fær ÍBV í heimsókn í KA-heimilið í dag klukkan 14:30. KA/Þór er með 13 stig í 6.sæti Olís-deildar kvenna en ÍBV er með 24 stig í 2.sætinu. Atvikið sem um ræðir má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.