Alexandra framlengir í Eyjum
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Alexandra Ósk Viktorsdóttir (Eyjólfur Garðarsson)

Hægri hornamaðurinn í liði ÍBV í Olís-deild kvenna, Alexandra Ósk Viktorsdóttir hefur framlengt samningi sínum við ÍBV til ársins 2028. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum nú rétt í þessu.

,,Alexandra Ósk er með þeim efnilegustu leikmönnum félagsins og hefur verið fastur partur af yngri landsliðum Íslands í handbolta, þar sem hún hefur tekið þátt í verkefnum með U16, U18 og U20 ára landsliðum. Hún sameinar metnað, vinnusemi og mikla reynslu þrátt fyrir ungan aldur og er mikilvægur hluti af framtíð ÍBV," segir í tilkynningunni frá ÍBV.

Alexandra hefur skorað 66 mörk í 16 leikjum fyrir ÍBV í Olís-deildinni á þessu tímabili en liðið er í 2.sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir toppliði Vals.

ÍBV fær Stjörnuna í heimsókn í 17.umferð Olís-deildarinnar næstkomandi laugardag.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top