Bjarki Már skoraði 11 mörk
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Bjarki Már Elísson (Ayman Aref / NurPhoto via AFP)

Landsliðsmaðurinn, Bjarki Már Elísson gerði sér lítið fyrir og skoraði ellefu mörk í ellefu marka sigri ONE Veszprém á Gyöngyösi í 8-liða úrslitum ungverska bikarsins. Lokatölur 30-41 Veszprém í vil eftir að Bjarki og félagar hafi leitt 21-12 í hálfleik.

Með sigrinum komst Veszprém í undanúrslit bikarkeppninnar en auk Veszprém eru Tatabanya og NEKA komin áfram í undanúrslitin en gera má ráð fyrir því að Janus Daði Smárason og félagar í Pick Szeged komist áfram í undanúrslitin en þeir mæta neðri deildarliði DEAC í lokaleik 8-liða úrslitanna annað kvöld.

Um var að ræða fyrsta leik Bjarka Más með Veszprém eftir Evrópumótið sem fram fór í janúar en samningur Bjarka Más við Veszprém rennur út eftir tímabilið. Liðið er á toppi ungversku deildarinnar með stigi meira en Pick Szeged en eiga tvo leiki til góða.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top