Gauti Gunnarsson (Sævar Jónasson)
Stjörnumenn ættu ekki að gera ráð fyrir því að Gauti Gunnarsson hægri hornamaður liðsins leiki með liðinu gegn Haukum í 18.umferð Olís-deildar karla næstkomandi föstudag eftir að hann sneri sig illa á ökkla í upphafi seinni hálfleiks í tapi Stjörnunnar gegn Selfossi í gær. Selfoss vann leikinn með einu marki og fór með sigrinum upp fyrir Stjörnuna og eru í 8.sæti deildarinnar á meðan Stjarnan eru 9.sætinu með 10 stig. Gauti steig með hægri fæti á ristina á leikmann Selfoss með þeim afleiðingum að hann sneri sig illa og er stökkbólginn. Handkastið hefur fengið senda mynd af ökklanum á Gauta sem leit ekki vel út á myndum. Gauti sagði í samtali við Handkastið að það væri búið að útiloka brot en að öðru leyti væri ekki hægt að segja til um það hversu lengi hann yrði frá keppni. Stjarnan mætir Aftureldingu í 19.umferðinni á fimmtudaginn í næstu viku en í kjölfarið kemur pása í Olís-deildinni vegna Final 4 bikar helgarinnar. Fyrir á meiðslalista Stjörnunnar eru þeir Pétur Árni Hauksson og Ísak Logi Einarsson sem meiddust báðir í janúar en þá hafa Egill Magnússon, Tandri Már Konráðsson og Sveinn Andri Sveinsson ekkert leikið með liðinu í vetur. Jón Ásgeir Eyjólfsson kom til baka í lið Stjörnunnar í leiknum í gær eftir meiðsli sem hann hlaut fyrir áramót. Hér að neðan má sjá myndskeið af því þegar Gauti sneri sig í leiknum í gær.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.