Ísland sjöunda besta landsliðið í Evrópu
Johan Nilsson/TT /AFP

Íslenska karla landsliðið er það sjöunda sterkasta í Evrópu samkvæmt styrkleikalista EHF en evrópska handknattleikssambandið birti listann í dag. Rúm vika er síðan Evrópumótið sem fram fór í Noregi, Svíþjóð og Danmörku lauk.

Þar endaði Ísland í 4.sæti eftir tap gegn Króatíu um bronsið en Danir eru Evrópumeistarar í fyrsta sinn í 14 ár eftir sigur á Þjóðverjum. Portúgal endaði í 5.sæti og Svíþjóð í því sjötta.

Engin breyting varð á efstu þremur þjóðunum en Danmörk eru efstir á listanum en eftir þeim kemur Frakkland og Þýskaland.

Ísland og Slóvenía eru hástökkvarar af þeim þjóðum sem eru á topp tíu listanum sem báðar þjóðirnar fóru upp um tvö sæti. Ungverjaland og Svíþjóð féllu niður um tvö sæti hinsvegar.

Hér má sjá styrkleikalista EHF:

  1. Danmörk
  2. Frakkland
  3. Þýskaland
  4. Króatía
  5. Portúgal
  6. Svíþjóð
  7. Ísland
  8. Ungverjaland
  9. Noregur
  10. Slóvenía

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top