Tveir leikmenn HK meiddust illa í sömu vörninni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Leó Snær Pétursson (Sævar Jónasson)

Tveir leikmenn HK meiddust illa í sömu vörninni í leik gegn ÍR í 17.umferð Olís-deildar karla í gærkvöldi. Aron Dagur Pálsson fór í og úr axlarlið og skömmu síðar fór Leó Snær Pétursson úr hnéskelslið. Báðir fóru þeir af velli í kjölfarið og vitaskuld komu þeir ekki aftur við sögu í leiknum.

ÍR vann lífsnauðsynlegan sigur á HK í gær 36-31 en þetta var einungis annar sigurleikur ÍR í Olís-deildinni í vetur en liðið situr sem fastast á botni deildarinnar með sjö stig, tveimur stigum á eftir Þór sem er í 11.sætinu.

Atvikin áttu sér stað í upphafi leiks og hafði mikil áhrif á leik HK í leiknum en þeir höfðu skorað fyrstu fjögur mörk HK í leiknum en ósköpin áttu sér stað í stöðunni 4-4 þá hafði Aron Dagur skorað tvö mörk og Leó Snær tvö.

,,Það er lítið sem ég get sagt um þetta núna. Ég fór úr axlarlið og aftur í en það verður að koma í ljós hversu lengi ég verð frá," sagði Aron Dagur í samtali við Handkastið.

Leó Snær hefur lent í því ítrekað að fara úr hnéskelslið. ,,Ég ætla bara að vona að allt annað í hnénu sé heilt. En ég þarf í raun bara að bíða eftir niðurstöðum," sagði Leó sem hefur ekki tölu á því hversu oft þetta hefur gerst fyrir hann.

,,Þetta var ekkert högg. Það sést ágætlega þegar maður horfir á þetta aftur að vinstri löppin beinir í allt aðra átt en ég er á leiðinni í," sagði Leó í samtali við Handkastið.

HK er í 10.sæti deildarinnar með 10 stig, einu stigi frá umspilssæti en þar eru nýliðar Þórs. HK og Þór mætast í Kórnum á föstudaginn í gríðarlega mikilvægum leik fyrir bæði lið.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top