Aron Pálmarsson (J.Long)
Aron Pálmarsson hefur verið ráðinn nýr aðstoðarþjálfari FH í Olís deild karla og mun sinna því starfi út yfirstandandi tímabil. Aron Pálmarsson er uppalinn í Kaplakrikanum og spilaði með FH síðustu tvö tímabil og varð hann meðal annars Íslandsmeistari með liðinu árið 2024. Aron Pálmarsson setti handboltaskóna á hilluna eftir síðasta tímabil. ,,Einar Andri Einarsson mun áfram vera í þjálfarateymi liðsins en mun í auknu mæli taka að sér önnur verkefni hjá handknattleiksdeildinni,” segir í tilkynningunni frá FH. FH situr í fjórða sæti deildarinnar og mætir liðið Selfoss í næstu umferð Olís deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.