Fer Viktor Gísli til Guðjóns Vals?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Viktor Gísli Hallgrímsson (Javier Borrego / Spain DPPI / AFP)

Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur þýska úrvalsdeildarfélagið Gummersbach áhuga að fá landsliðsmarkvörðinn, Viktor Gísla Hallgrímsson til sín þegar samningur hans við Barcelona rennur út sumarið 2027.

Viktor Gísli gekk í raðir Barcelona fyrir þetta tímabil og gerði tveggja ára samning við spænska félagið. Hann er nú í harðri baráttu við danska markvörðinn Emil Nielsen um spil mínútur hjá Barcelona en Emil Nielsen gengur í raðir ungverska stórliðsins, Veszprém í sumar.

Miklar markvarðarbreytingar eru framundan í þýska boltanum í sumar en Dominik Kuzmanovic markvörður Gummersbach gengur í raðir Magdeburg en Sergey Hernandez markvörður Magdeburg gengur í raðir Barcelona og verður liðsfélagi Viktors Gísla.

Spánverjinn, Ignacio Biosca hefur verið orðaður við Gummersbach í sumar til að fylla skarð Kuzmanovic en Biosca er leikmaður Nantes í Frakklandi í dag.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top