Hafdís Renötudóttir (Egill Bjarni Friðjónsson)
Valur vann sex marka sigur á Haukum í 16.umferð Olís-deildar kvenna um helgina, 29-23 eftir að hafa verið 17-13 yfir í hálfleik. Valur var án Theu Imani Sturludóttir og Mariam Eradze en það skiptir litlu máli þegar Valur er með Hafdísi Renötudóttir í markinu. ,,Hún er bara svindl í þessari deild. Hún er með 40% markvörslu í hverjum einasta leik nánast,” sagði Stymmi klippari og Arnar Daði Arnarsson greip inní. ,,Og ef hún er ekki með þannig prósentu þá er Valur í basli. Þetta virðist bara snúast um það.” ,,Hafdís og Sandra Erlings. eru lang bestu leikmenn deildarinnar án þess að halla á einhverjar aðrar," bætti Klipparinn við. Valur er á toppi Olís-deildarinnar með 28 stig, tveimur stigum meira en ÍBV en Valur fer í Skógarselið á laugardaginn og mætir þar ÍR í 17.umferð deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.