Ísland gæti verið í riðli með Frökkum eða Spánverjum á HM
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Gísli Þorgeir Kristjánsson ((Photo by Thomas Traasdahl / Ritzau Scanpix via AFP)

Íslenska karla landsliðið verður í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir Heimsmeistaramótið sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári. Dregið verður í riðla fyrir HM þann 10. júní á þessu ári.

Ísland endaði í 4. sæti á nýafstöðnu Evrópumóti og tryggði sér þar með sæti á HM næsta árs en sex efstu þjóðirnar á Evrópumótinu hafa tryggt sér sæti á HM. Þýskaland sem enduðu í 2.sæti verða gestgjafar og þá hafði Danmörk sem eru ríkjandi Heims-, Evrópu- og Ólympíumeistarar þegar tryggt sér sæti á mótinu eftir sigur á síðasta heimsmeistaramóti.

32 þjóðir taka þátt á heimsmeistaramótinu en spilað verður í átta fjögurra liða riðlum þar sem þrjú efstu lið hvers riðils tryggir sér sæti í milliriðli keppninnar. Neðsta liðið í hverjum riðli leikur í Forsetabikarnum.

Enn er óvíst hvar Ísland leikur leiki sína í riðlakeppninni en riðlakeppnin verður leikin í München, Stuttgart, Magdeburg og Kiel. Milliriðlarnir fara síðan fram í Köln og Hannover. Tveir riðlar verða leiknir í hverri borg en Þýskaland leikur í München og Danmörk í Kiel.

19 þjóðir hafa nú þegar tryggt sér sæti á HM en enn eiga þrettán þjóðir til viðbótar eftir að tryggja sér sæti á mótinu. 

Hér að neðan má sjá hvernig styrkleikaröðunin er en mesta athygli vekur að ef Frakkland vinnur Tékkland í umspilsleikjunum þá eru þeir í 2. styrkleika. Ísland gæti því endað með Frakklandi í riðli. Þá verða Spánverjar og Noregur einnig í 2.styrkleika komist þeir í gegnum umspilseinvígið.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top