Elvar Ásgeirsson (Attila KISBENEDEK / AFP)
Fjölmargir leikir fóru fram á Norðurlöndunum í kvöld en fimm Íslendingalið í Noregi, Svíþjóð og Danmörku voru í eldlínunni. Efstu tvö liðin í Noregi, Elverum og Kolstad unnu bæði sína leiki í kvöld sem þýðir að Elverum er áfram tveimur stigum á undan Kolstad. Elverum vann 33-29 á heimavelli gegn Bergen þar sem Tryggvi Þórisson skoraði eitt mark úr þremur skotum og fékk eina brottvísun. Kolstad mætti Bækkelaget á útivelli og unnu góðan sigur, 29-35. Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði fjögur mörk úr fjórum skotum og gaf einnig tvær stoðsendingar á meðan Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði tvö mörk úr fjórum skotum og gaf eina stoðsendingu. Sigurjón Guðmundsson fékk tækifæri í markinu og varði þrjú skot af þeim sextán sem hann fékk á sig eða 19% markvarsla. Í efstu deild kvenna í Svíþjóð voru Kristianstad í heimsókn hjá Hallby og þurftu því miður að lúta í lægra haldi fyrir heimakonum, lokatölurnar urðu 34-29 fyrir Hallby. Berta Rut Harðardóttir skoraði eitt mark úr einu skoti fyrir Kristianstad sem er áfram í harðri baráttu um að komast í efstu átta sætin sem gefa þátttöku í úrslitakeppni. Í Danmörku náði Ribe-Esbjerg í mjög öflugt og mikilvægt stig á útivelli gegn GOG, lokatölur 30-30 en Elvar Ásgeirsson skoraði fjögur mörk úr átta skotum og gaf fjórar stoðsendingar að auki. Að lokum töpuðu Skanderborg á heimavelli gegn Bjerringbro-Silkeborg, 25-26 en eins og í seinasta leik var Kristján Örn Kristjánsson fjarri góðu gamni en hann er frá vegna meiðsla. Skanderborg áfram í öðru sæti en næstu þrjú lið fyrir aftan þá eru öll með stigi minna. Úrslit kvöldsins: Elverum 33-29 Bergen Bækkelaget 29-35 Kolstad Hallby IF 34-29 Kristianstad GOG 30-30 Ribe-Esbjerg Skanderborg 25-26 Bjerringbro-Silkeborg

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.