Össur skildi Daníel Montoro eftir í reyk
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Össur Haraldsson (Egill Bjarni Friðjónsson)

Össur Haraldsson skoraði skemmtilegt mark í sannfærandi sigri Hauka gegn Val í 16.umferð Olís-deildar karla í síðustu viku. Vakin var athygli á markinu í Handboltahöllinni sem sýnd er í opinni dagskrá öll mánudagskvöld í Sjónvarpi Símans.

Þar vann Össur Haraldsson, vinstri hornamaður Hauka boltann eftir frákast baráttu við Daníel Montoro hægri hornamann Vals. ,,Þetta var frábært mark en hvernig nær hann þessu frákasti? Þetta er munurinn á liðunum í þessum leik frá fyrstu mínútu sama hvort Haukar voru í vörn eða sókn. Það var mikli meiri ákveðni í þeirra liði," sagði Ásbjörn Friðriksson meðal annars.

,,Það er ekki nóg með að hann nær boltanum fyrir framan Daníel, þá platar Össur, hann aftur og skilur hann eftir í reyk," sagði Vignir Stefánsson en hann ásamt Ásbirni voru gestir í Handboltahöllinni í síðasta þætti.

Markið má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top