Nebosja Simic (Swen Pförtner / dpa Picture-Alliance via AFP)
Neobosja Simic markvörður Melsungen í þýsku úrvalsdeildinni birti færslu á Instagram síðu sinni í gær þar sem hann segir frá því að hann snúi til baka á völlinn í kvöld í fyrsta sinn í 10 mánuði en hann meiddist illa á hné í leik með Melsungen gegn Gummersbach í fyrra. Simic sleit krossband í mars á síðasta ári en snýr nú til baka og verður í leikmannahópi Melsungen gegn Arnóri Þór Gunnarssyni og félögum í Bergischer í kvöld en um er að ræða fyrstu umferðina í þýsku úrvalsdeildinni á nýju ári. Fjórir leikir fara fram í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Rhein Neckar-Lowen mætir Kiel klukkan 18:00 og stórleikur umferðarinnar er síðan leikur Magdeburg og Lemgo klukkan 19:00 en um er að ræða liðin í 1. og 3.sæti deildarinnar en Lemgo er spútnik lið tímabilsins til þessa í 3.sætinu með 30 stig, sex stigum á eftir Magdeburg. Rúnar Sigtryggsson og Lærisveinar hans í Wetzlar fá Fuchse Berlín í heimsókn og loks er það leikur Bergischer og Melsungen.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.