Þór hreinlega vaskar þessum leik í stöðunni 19-19
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Daniel Birkelund (Egill Bjarni Friðjónsson)

Segja mætti að Þórsarar hafi verið sjálfum sér verstir á heimavelli gegn FH í 17.umferð Olís-deildar karla um helgina en liðið tapaði með fimm mörkum 21-26 en FH vann lokakaflann í leiknum 7-2 eftir að staðan hafi verið 19-19 og rúmlega 10 mínútur eftir af leiknum.

Rætt var um lokakaflann í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins þar sem rætt var um ákvörðun Þórs að fara í 7 á 6 sóknarlega sem reyndist þeim dýrkeypt.

,,Ég hata 7 á 6 eins og hlustendur Handkastsins ættu að vita en ég skil alveg að þú reynir þetta en fórnarkostnaðurinn er svo gífurlega mikill. Nikola Radonovic var á eldi í marki Þórs með 18 varða bolta og FH var í erfiðleikum með að skora en FH klárar þennan leik útaf sóknarmistökum Þórs. Ég finn til með mínum manni Nikola sem var með FH-ingana í vasanum. FH var búið að skora 19 mörk eftir 48 mínútur," sagði Stymmi klippari og Ásgeir Jónsson gestur Handkastsins í þættinum tók undir orð Klipparans.

,,Það þarf ekkert að ofgreina þennan leik eitthvað meira. Þór hreinlega vaskar þessum leik í stöðunni 19-19. FH-ingarnir eru að hlaupa inn í einfaldar sendingar Þórsara og skora auðveld mörk í kjölfarið. FH átti í verulegum vandræðum með að skora í leiknum, Þórsarar auðvitað líka en því miður fyrir Þór þá vaska þeir þessum leik algjörlega sjálfir.”

Arnar Daði Arnarsson, Sérfræðingurinn benti þó á að svona er bara raunveruleikinn þegar lið fara í 7 á 6.

,,Stundum er þetta svona með 7 á 6, þetta er svona allt eða ekkert og í þessum leik var þetta ekkert fyrir Þór,” benti Sérfræðingurinn á og bætti við að hann var ekkert viss þegar hann horfði á leikinn að Þórsarnir hefðu klárað þetta 6 á 6.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top