Eftirmaður Hilmars fundinn hjá HK
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Hlynur Morthens - Dagur Snær Steingrímsson (Baldur Þorgilsson)

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Handkastsins hefur HK fundið eftirmann Hilmars Guðlaugssonar sem hættir með kvennalið félagsins eftir tímabilið. Eftirmaður Hilmars samkvæmt heimildum Handkastsins er Dagur Snær Steingrímsson.

Dagur Snær Steingrímsson var aðstoðarþjálfari Ágústar Jóhannssonar með kvennalið Vals í nokkur ár en þetta verður hans fyrsta meistaraflokks verkefni sem aðalþjálfari. Dagur hefur lengi þjálfað yngri flokka hjá Val og þá var hann einnig bókari hjá HSÍ auk þess að hafa tekið að sér þjálfun yngri landsliða Íslands.

Enn er óvíst hvort Dagur Snær fái það verkefni að stýra kvennaliði HK í Olís eða Grill66-deildinni á næsta tímabili en HK er á toppi Grill66-deildarinnar en mætir Gróttu á Nesinu annað kvöld klukkan 19:00 en um er að ræða toppslag tveggja efstu liða deildarinnar. 

HK er á toppi Grill66-deildarinnar með 30 stig en Grótta er tveimur stigum á eftir HK. Fimm umferðir eru eftir af mótinu en vinni Grótta leikinn annað kvöld, jafnar Grótta HK að stigum og er með betri innbyrðisstöðu milli liðanna.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top