Monsi á eldi – Óðinn aftur á sigurbraut
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Óðinn Þór Ríkharðsson (JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)

Stiven Tobar Valencia var ekki meðal markaskorara í liði Benfica er liðið tapaði gegn Aguas Santas í portúgölsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi, 28-26 á útivelli. Aguas Santas er í 4.sæti deildarinnar á meðan Benfica er áfram í 2.sæti deildarinnar en Porto gætu farið upp fyrir þá vinni þeir Vitora á morgun.

Vinstri hornamaðurinn og fyrrum liðsfélagi hjá Val, Úlfar Páll Monsi Þórðarson átti frábæran leik fyrir RK Alkaloid þegar liðið vann sannfærandi sigur á Eurofarm Pelister 2 36-22 á útivelli í Norður-Makedóníu í gærkvöldi. Monsi gerði sér lítið fyrir og skoraði átta mörk úr átta kotum og var markahæsti leikmaður Alkaloid í leiknum.

Alkaloid er í 4.sæti deildarinnar með 33 stig, fimm stigum á eftir toppliði Vardar 1961 en einungis einu stigi á eftir Eurofarm Pelister sem er í 2.sætinu og með jafn mörg stig og Ohrid sem er í 3.sætinu. Það er því mikil spenna á toppnum í Norður-Makedóníu.

Í Sviss komst Kadetten Schaffhausen aftur á sigurbraut eftir fyrsta tap liðsins í tíu mánuði heima fyrir um síðustu helgi er liðið tapaði gegn Wacker Thun. Í gær vann liðið hinsvegar eins marks sigur á HC Kriens 27-26 á útivelli. Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði þrjú mörk í leiknum þar af tvö úr víti.

Óðinn Þór og félagar þurfa ekki að hafa miklar áhyggjur í deildinni en liðið er með ellefu stiga forskot á toppi deildarinnar.

Að lokum tryggðu Pick Szeged sér sæti í undanúrslitum ungverska bikarsins með ellefu marka sigri á neðri deildarliðinu DEAC, 37-26 á útivelli.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top