Ísland (Johan Nilsson/TT /AFP)
Íslenska kara landsliðið leikur í næsta mánuði tvo æfingaleiki gegn Svíþjóð hér á landi. Um er að ræða fyrstu æfingaleiki íslenska landsliðsins frá því í nóvember árið 2023 þegar leiknir voru tveir æfingaleikir gegn Færeyjum. Ekki er víst hvar leikirnir við sænska landsliðið fara fram en það er handbolti.is sem greinir frá. Laugardalshöllin er bókuð fyrir aðra viðburði sömu viku og áætlað er að leikirnir fari fram, vikuna 16.-22.mars en ekki hefur verið gefnir út leikdagar fyrir leikina. Ásgeir Jónsson varaformaður HSÍ sagði við handbolta.is fyrr í dag að nýráðinn framkvæmdastjóri HSÍ, Sólveig Jónsson, ynni í að leysa úr málinu og vísaði Ásgeir erindinu til framkvæmdastjóra. Heimildir Handbolta.is herma að ef landsleikirnir fari ekki fram í Laugardalshöllin er líklegt að leikirnir við Svía fari annað hvort fram í Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum eða í N1-höllinni á Hlíðarenda. Gera má ráð fyrir því að mikil aðsókn væri á æfingaleikina báða enda ekki á hverjum degi sem íslenskir áhorfendur fá tækifæri til að horfa á Strákanna okkar spila gegn jafn sterkum andstæðingi hér á Íslandi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.