Elliði í liði umferðarinnar
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Elliði Snær Viðarsson (Thomas Traasdahl / Ritzau Scanpix via AFP)

Elliði Snær Viðarsson er í úrvalsliði 20. umferðar þýsku úrvalsdeildarinnar eftir frábæra frammistöðu í sjö marka sigri Gummersbach gegn Flensburg-Handewitt í vikunni. Um var að ræða fyrstu umferðina í þýsku úrvalsdeildinni eftir áramót.

Elliði Snær gerði sér lítið fyrir og skoraði átta mörk úr 11 skotum í 33-26 sigri liðsins.

Lið 20.umferðar er þannig skipað:

Dominik Kuzmanovic (Gummersbach)
14 varðir boltar, 38% markvarsla í sjö marka sigri á Flensburg.

Casper U. Mortensen (Hamburg)
Var markahæstur í liði Hamburg í tveggja marka tapi gegn Liepzig með 8 mörk úr níu skotum.

Eric Johannsson (Kiel)
Sjö mörk og sex stoðsendingar í eins marks útisigri Kiel gegn Rhein-Neckar Lowen.

Tobias Grondahl (Fuchse Berlín)
Hans lang besti leikur í vetur með 12 mörk og tvær stoðsendingar í 14 marka sigri á Rúnari Sigtryggssyni og félögum í Wetzlar.

Mathias Gidsel (Fuchse Berlín)
Gidsel skoraði átta mörk úr tíu skotum og gaf þrjár stoðsendingar í sigrinum á Wetzlar.

Lukas Zerbe (Kiel)
Sjö mörk úr átta skotum úr hægra horninu í sigri gegn Rhein Neckar Lowen.

Elliði Snær Viðarsson (Gummersbach)
Elliði Snær gerði sér lítið fyrir og skoraði átta mörk úr 11 skotum í 33-26 sigri liðsins.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top