Þorsteinn Leó og Monsi markahæstir
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Þorsteinn Leó Gunnarsson (Hugo Segato / DPPI via AFP)

Íslendingarnir voru í eldlínunni um víða Evrópu í kvöld og gátu þeir allir fagnað sigrum með sínum liðum.

Bjarki Már Elísson skoraði fjögur mörk fyrir ONE Veszprém í 14 marka sigri liðsins á Ferencvaros á heimavelli í Ungverjalandi í kvöld, 43-29. Gasper Marguc var markahæstur í liði Veszprém með sex mörk.

Veszprém er á toppi ungversku úrvalsdeildarinnar og virðast fátt geta stöðvað þá í enn einum deildarmeistaratitlinum í Ungverjalandi.

Úlfar Páll Monsi Þórðarson var markahæstur í liði Alkaloid í 21 marks sigri liðsins gegn HC Struga í Norður-Makedóníu í kvöld. Alkaloid hafði betur, 41-20 þar sem Monsi skoraði sjö mörk úr sjö skotum. Alkaloid eru áfram í 4.sæti deildarinnar, fimm stigum á etir Vardar sem er á toppi deildarinnar.

Sveinn Jóhannsson og félagar hans í Chambéry unnu PAUC Aix í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld með tveimur mörkum 31-29 en Chambéry hafði fimm marka forskot í hálfleik 17-12. Chambéry er í 5.sæti deildarinnar með 19 stig, 12 stigum á eftir PSG sem er á toppi deildarinnar. Sveinn skoraði tvö mörk í leiknum í kvöld.

Að lokum vann Porto tíu marka sigur á Vitora í Portúgal, 29-19 en staðan var 12-10 Porto í vil í hálfleik. Þorsteinn Leó Gunnarsson var markahæstur í liði Porto með fjögur mörk ásamt Pol Rovira, Daymaro Salina og Antonio Llamazares.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top