Norðurlöndin: Kolstad missteig sig í toppbaráttunni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Guðmundur Bragi Ástþórsson (Eyjólfur Garðarsson)

Fjögur Íslendingalið voru í eldlínunni í dag í Svíþjóð og Noregi en Kolstad missteig sig í toppbaráttunni í Noregi á meðan Karlskrona unnu nauðsynlegan sigur í Svíþjóð.

Í sænsku kvennadeildinni unnu Skara nauman heimasigur á Önnereds, 25-24. Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði tvö mörk úr þremur skotum og gaf tvær stoðsendingar að auki.

Karlskrona unnu lífsnauðsynlegan sigur á meisturunum í Ystad í karladeildinni, lokatölur urðu 33-29. Arnór Viðarsson skoraði fjögur mörk úr sjö skotum og gaf fimm stoðsendingar en núna eru Karlskrona aðeins stigi á eftir Ystad sem sitja í áttunda sætinu og það sem meira er eiga Karlskrona einn leik til góða.

Í Noregi náðu Elverum fjögurra stiga forskoti á Kolstad þar sem meistararnir í Kolstad töpuðu óvænt á heimavelli fyrir Arendal, 30-31. Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði eitt mark úr einu skoti og gaf fjórar stoðsendingar á meðan Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fjögur mörk úr fimm skotum og fékk einnig eina brottvísun. Sigurjón Guðmundsson fékk stórt tækifæri í marki liðsins og stóð sig vel, varði níu skot af þeim tuttugu og fjórum sem hann fékk á sig eða 38% markvarsla en aðalmarkmaður liðsins varði ekki skot.

Elverum unnu á sama tíma góðan útisigur á Follo, 26-30. Tryggvi Þórisson var að venju í leikmannahópi liðsins en skoraði ekki mark í dag.

Úrslit dagsins:

Skara 25-24 Önnereds

Karlskrona 33-29 Ystad

Kolstad 30-31 Arendal

Follo 26-30 Elverum

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top