Amelía Dís Einarsdóttir - wÍBV (Sævar Jónasson)
Einum leik í Olís deild kvenna var að ljúka en hann fór fram í Vestmannaeyjum þar sem ÍBV og Stjarnan áttust við. Jafnræði var með liðunum allan leikinn í dag en gestirnir í Stjörnunni voru yfir í hálfleik 17-18 og hélt leikurinn áfram að vera jafn í síðari hálfleik og allt stefndi í jafntefli en heimakonur silgdu framúr á síðustu mínútum leiksins og lönduðu að lokum tveggja marka sigri 31-29. Atkvæðamestar í liði ÍBV var Birna Berg Haraldsdóttir en hún skoraði tíu mörk í dag. Ásta Björt Júlíusdóttir skoraði sex og Sandra Erlingsdóttir fimm. Atkvæðamestar í liði Stjörnunnar voru Natasja Hammer með átta mörk. Inga Maria Roysdottir skoraði sex og Eva Björk Davíðsdóttir fimm.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.