Sirkus mark af þriðju hæðinni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Natasja Hammer (Sævar Jónasson)

Natasja Hammer skoraði laglegt sirkus mark í tapi Stjörnunnar gegn ÍR í 16. umferð Olís-deildar kvenna um síðustu helgi. Natasja Hammer minnkaði muninn í eitt mark með sirkus marki sínu en ÍR reyndust sterkari aðilinn í lokin og unnu að lokum fjögurra marka sigur 27-31.

,,Þetta er rosalegt mark," sagði Ásbjörn Friðriksson í Handboltahöllinni sem sýnd er öll mánudagskvöld í Sjónvarpi Símans.

,,Þetta er upp á þriðju hæð, þetta frábærlega gert," sagði Vignir Stefánsson sem var ásamt Ásbirni gestur í Handboltahöllinni í síðasta þætti.

Stjarnan heimsækir ÍBV heim til Vestamannaeyja í 18.umferð Olís-deildar kvenna í dag en liðið er í næst neðsta sæti deildarinnar með fimm stig, stigi meira en Selfoss sem er á botninum með fjögur stig.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top