wFH (Brynja T.)
Í dag mættust Fram 2 og FH í Grill 66 deild kvenna í Úlfarsárdal.
Fyrsta korterið í leiknum var mjög jafnt og var leikurinn stál í stál. Eftir 15 mínútur var staðan 6-6. FH stelpur voru svo mun betri seinna korterið í fyrri hálfleiknum og fóru inn til búningsherbergja í hálfleik með 4 marka forskot. 7-11 var staðan fyrir FH.
Í seinni hálfleik var tiltölulega lítið skorað lengi vel en FH alltaf í bílstjórasætinu. Fram stelpur játuðu sig fljótt sigraða og komst FH mest 10 mörkum yfir. Lokatölur urðu 18-27 fyrir FH. Sanngjarn og öruggur sigur hjá Hafnarfjarðar stelpum.
Hjá Fram 2 var Katla Kristín Hrafnkelsdóttir markahæst með 7 mörk. Arna Sif Jónsdóttir varði 17 skot.
Hjá FH var Thelma Dögg Einarsdóttir markahæst með 6 mörk. Sonja Szöke varði 17 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.