Aron Dagur og Leó Snær hafa lokið leik
Sævar Jónasson

Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari HK sagði í viðtali við Handkastið eftir sigur liðsins gegn Þór í 18.umferð Olís-deildar karla að hann geri ekki ráð fyrir því að Aron Dagur Pálsson og Leó Snær Pétursson leiki meira með HK á tímabilinu.

Báðir meiddust þeir í sömu vörninni í tapi HK gegn ÍR í 17.umferðinni. Aron Dagur fór úr og í axlarlið á meðan Leó Snær fór í hnékelslið, já í einu og sömu vörninni í upphafi leiks en staðan var 4-4 þegar atvikin áttu sér stað. Báðir höfðu þeir skorað tvö mörk hvor í leiknum.

HK er í 8.sæti Olís-deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir með 12 stig. Liðið vann lífsnauðsynlegan sigur á Þór á föstudagskvöldið 31-27. Selfoss er í 9.sætinu með 11 stig og Stjarnan í því 10. með 10 stig.

Í viðtalinu sagði Halldór Jóhann einnig frá því að Jóhann Birgir Ingvarsson væri að leika handarbrotinn og þá væri Sigurður Jefferson tæpur á fæti og var að spila á annarri löppinni eins og Halldór orðaði það í viðtalinu.

HK heimsækir Íslands- og bikarmeistara Fram í Úlfarsárdalinn næstkomandi föstudagskvöld en eftir það tekur við bikarúrslitahelgi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top