Eva Hrund tekur við af Basta
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Eva Hrund (Mynd Víkingur Handbolti) (

Eva Hrund Harðardóttir er að taka við sem þjálfari Víkings en það er Víkingur sem greinir frá þessum fréttum á samfélagsmiðlum félagsins núna í kvöld en Sebastian Popovic Alexandersson, núverandi þjálfari meistaraflokks kvenna í handknattleik Víkings, hefur ákveðið að láta af störfum að loknu yfirstandandi tímabili. Hann hefur stýrt liðinu undanfarin tvö ár og mun ljúka tímabilinu með Víkingi þar sem liðið stendur í 3. sæti deildarinnar.

Eva Hrund Harðardóttir mun taka við sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víkingi. Eva á að baki langan og farsælan feril sem leikmaður í meistaraflokki en hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með Fram haustið 2002 og lauk leikmannaferlinum með HK vorið 2021. Hún hefur jafnframt víðtæka reynslu af þjálfun yngri flokka og hefur starfað sem þjálfari frá árinu 2005. Undanfarin ár hefur hún meðal annars þjálfað 3. flokk kvenna og verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá HK tímabilið 2023–2025. Síðastliðið haust tók hún við 4. flokki kvenna hjá Víkingi og hefur samhliða tekið þátt í þjálfun 3. flokks kvenna. Í 4. flokki kvenna hefur Eva byggt upp öfluga liðsheild og myndað sterkan hóp þar sem metnaður og áræðni eru í fyrirrúmi.

„Ég er spennt fyrir komandi tímum og finn fyrir góðum meðbyr. Það er margt jákvætt að gerast hjá félaginu og ég er viss um að við sem störfum í kringum liðið getum í sameiningu eflt og styrkt handboltakonur og í leiðinni lyft kvennastarfinu upp. Það er augljóst að síðastliðin ár hefur gott starf verið unnið hjá Handknattleiksdeild Víkings. Ég hlakka til að byggja ofan á þann grunn sem hefur verið lagður og lít björtum augum til framtíðar,” sagði Eva við handknattleiksdeild Víkings við undirskriftina

Stjórn handknattleiksdeildar Víkings fagnar ráðningu Evu þar sem hún er einstaklega metnaðarfull og með skýra sýn. Stjórn bindur vonir við að Eva muni halda áfram þeirri vegferð sem kvennahandboltinn er á með því að lyfta kvennastarfinu enn hærra. Hún mun stíga sín fyrstu skref sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna, það verður spennandi að fylgjast með henni í stærra hlutverki hjá félaginu.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top