Gunnar Steinn gerir óvænt félagaskipti til Hammarby
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Gunnar Steinn Jónsson (Fjölnir.is)

Handboltamaðurinn og þjálfari Fjölnis í Olís-deild karla á síðustu leiktíð, Gunnar Steinn Jónsson hefur gert óvænt félagaskipti yfir til sænska úrvalsdeildarliðsins, Hammarby sem situr um þessar mundir í 3.sæti sænsku úrvalsdeildarinnar, sex stigum á eftir toppliði Kristianstad.

Gunnar Steinn flutti ásamt fjölskyldu sinni aftur til Svíþjóðar í sumar en Gunnar Steinn lék í Svíþjóð á sínum ferli meðal annars með Drott og Kristianstad. Þá lék hann einnig í Frakklandi, Danmörku og Þýskalandi áður en hann sneri aftur heim til Íslands og lék með Stjörnunni 2021-2023.

Hann tók síðan við uppeldisfélagi sínu Fjölni fyrir síðustu leiktíð og stýrði liðinu eitt tímabil í Olís-deildinni og lék meðal annars með liðinu. Handkastið sló á þráðinn til Svíþjóðar og heyrði í Gunnari Steini.

,,Miðjumaðurinn hér sleit hásin og þeir voru ekki að ná neinum inn í staðinn. Ég átti því að vera "backup" af því hópurinn er þunnskipaður, en þeir fengu síðan inn einn leikmann á síðustu stundu þannig að skórnir haldast á hillunni," sagði Gunnar Steinn sem gerir því ekki ráð fyrir að leika með Hammarby í sænsku úrvalsdeildinni þrátt fyrir að hafa gert félagaskipti til félagsins.

,,Ég er aðeins inn í þjálfarateyminu hér og þess vegna kom þetta upp," útskýrði Gunnar Steinn aðspurður út í aðdragandann.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top