Morten Boe Linder (Egill Bjarni Friðjónsson)
Norðmaðurinn í liði KA, Morten Boe Linder sem hefur leikið afar vel með KA á leiktíðinni fór úr axlarlið í tapi KA gegn Val um helgina en Valur vann leikinn með fimm mörkum 36-31 en leikurinn var lokaleikurinn í 18.umferð Olís-deildar karla. Þetta staðfesti Andri Snær Stefánsson þjálfari KA í samtali við Handkastið. KA fær ÍBV í heimsókn í lokaleik 19.umferðarinnar á sunnudaginn en í kjölfarið tekur við undanúrslitin í Powerade-bikarnum þar sem KA mætir ÍR en í hinum undanúrslitaleiknum mætast Haukar og FH. ,,Morten fór úr axlarlið í leiknum og er búinn að hitta lækni og kominn í meðferð við meiðslunum. Næstu dagar munu að skera úr um hversu lengi hann verður frá. Við vonum það besta en það er ljóst að Final 4 er í hættu hjá honum," sagði Andri Snær. Það er ljóst að um mikla blóðtöku er um að ræða fyrir KA en Morten Boe Linder er þriðji markahæsti leikmaður KA í Olís-deildinni á eftir Bjarna Ófeigi Valdimarsysni og Giorgi Dikhaminjia. Linder hafði skorað tvö mörk úr tveimur skotum og gefið fjórar stoðsendingar þegar hann meiddist í leiknum gegn Val á laugardaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.