Bjarki Már Elísson (Ayman Aref / NurPhoto via AFP)
Landsliðsmaðurinn, Bjarki Már Elísson er á sínu fjórða tímabili með ungverska stórliðinu ONE Veszprém og verður samningslaus eftir tímabilið. Bjarki gekk í raðir Veszprém sumarið 2022 eftir níu ár í Þýskalandi þar sem hann lék með Eisenach, Fuchse Berlín og Lemgo. Nú gæti hinsvegar verið komið að tímamótum hjá Bjarka Má í Ungverjalandi en samkvæmt heimildum Handkastsins ríkir óvissa um framtíð Bjarka Más á ferlinum. Bjarki Már hefur lítið viljað tjá sig við Handkastið um stöðu mála hjá sér en sagði að hans mál væru í vinnslu. Handkastið hefur heyrt í erlendum sérfræðingum sem hafa talað um margir samningslausir vinstri hornamenn í evrópskum handbolta væru á erfiðum stað við samningsborðið og væru margir vinstri hornamenn að leita sér af nýjum atvinnuveitanda þessa stundina.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.