Orri Freyr Þorkelsson (Bo Amstrup/Ritzau Scanpix)
Meistaradeild Evrópu fer aftur af stað eftir langa pásu í dag og á morgun þegar 11.umferðin verður leikin. Fjórar umferðir eru eftir af riðlakeppni áður en útsláttarkeppnin hefst síðan. 11.umferðin hefst í dag með fjórum leikjum. Stórleikur fer fram í Póllandi þegar Kielce og Vezprém mætast klukkan 17:45 en á sama tíma er norðurlandalagur þegar Álaborg og Kolstad mætast. Í Rúmeníu fær Dinamo Bucuresti þýsku meistarana í Fuchse Berlín í heimsókn og Magdeburg fær síðan GOG í heimsókn klukkan 19:45 í kvöld. Handkastið hefur tekið saman tíu markahæstu leikmenn keppninnar eftir 10.umferðina.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.