Samningaviðræður HSÍ við Snorra Stein á góðu róli
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Snorri Steinn Guðjónsson (ADA)

Snorri Steinn Guðjónsson var gestur í nýjasta þætti Handkastsins þar sem Evrópumótið í janúar var gert upp í Rapyd stúdíó-inu.

Farið var um víðan völl í þættinum og var Snorri Steinn meðal annars spurður út í samningaviðræður hans við HSÍ en samningur hans við HSÍ rennur út um mitt ár.

,,Samningaviðræðurnar við HSÍ ganga ágætlega. Ég þurfti smá tíma eftir mótið og ég hef hitt Adda (Arnar Freyr Theodórsson, umboðsmann), Nonna (Jón Halldórsson, formann HSÍ) og Sollu (Sólveigu Jónsdóttur framkvæmdastjóra HSÍ) og við höfum farið um víðan völl. Ég held að Nonni og umboðsmaður minn hittist eftir helgi og það er samtal í gangi sem ég held að sé á góðu róli."

Þannig það er þinn vilji að halda áfram?

,,Já, mér finnst ég ekki vera búinn og ég hef góða tilfinningu fyrir þessu. Mér finnst við vera á mjög góðri leið og ég held að við eigum meira inni.

Snorri Steinn er í 100% starfi sem landsliðsþjálfari Íslands - er það eitthvað sem hann vill halda óbreyttu eða er það eitt af þeim hlutum sem verið að ræða?

,,HSÍ hefur aldrei lokað á það að ég geti farið að þjálfa félagslið með landsliðsþjálfarastarfinu. Þetta er eitt af því sem verður rætt. Ég finn alveg fyrir því að það er áhugi erlendis frá og það eykst bara því meira sem ég er með landsliðið. Það sem er að breytast í þessum bransa er að liðin eru farin að hugsa langt fram í tímann bæði leikmanna og þjálfaralega séð. Það er eitthvað sem ég verð að hafa bakvið eyrað og fæst lið eru í því að reka þjálfarana og finna nýjan 1, 2 og 3. Það eru einhver félög sem gera það en blessunarlega er það ekki algengara en hitt. Þetta er klárlega eitthvað sem verður rætt í samningaviðræðunum við HSÍ."

Ertu í viðræðum við eitthvað erlent félag núna fyrir komandi tímabil?

,,Nei, ekkert svoleiðis.”

Finnst þér líklegt að þú stýrir erlendu félagsliði á næstu leiktíð?

,,Ég tjái mig ekki um það en nei, ég held ekki. Maður veit aldrei í þessu, þetta er starf sem ekki er gott að plana mjög langt fram í tímann og ekki taka hlutunum sem sjálfsögðum."

Hefðir þú áhuga að stýra liði í efstu deild á Íslandi?

,,Nei ég hef ekki áhuga á því.”

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top