Sara Katrín glímir við meiðsli
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sara Katrín Gunnarsdóttir (Sævar Jónasson)

Sara Katrín Gunnarsdóttir leikmaður Stjörnunnar var ekki með liðinu í síðasta leik liðsins gegn ÍBV þar sem Stjarnan tapaði 31-29 eftir að hafa verið yfir þegar 10 mínútur voru eftir af leiknum.

Sara Katrín varð fyrir meiðslum á æfingu í vikunni á undan þar sem hún sneri sig á ökkla og staðfesti þjálfarateymi Stjörnunnar það við Handkastið.

Óvíst er hvort Sara muni ná leiknum gegn Val um helgina en staðan á henni verður könnuð undir lok vikunnar.

Sara Katrín hefur skorað 43 mörk fyrir Stjörnuna í vetur svo þær þurfa svo sannarlega á henn að halda fyrir lokasprettinn í deildinni en Stjarnan er í fallbaráttu við Selfoss og munar einu stigi á liðunum. Selfoss er á botninum með fjögur stig en Stjarnan er með stigi meira. Liðin mætast í 19.umferð deildarinnar í mars.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top