Susanne Pettersen valin í strandhandboltalandslið Noregs
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Susanne Pettersen (Egill Bjarni Friðjónsson)

Susanne Pettersen leikmaður KA/Þórs á Akureyri hefur verið valin í norska landsliðið í strandhandbolta. Liðið kemur saman dagana 5.-8. mars í Osló.

Undirritaður er ekki viss hvort þetta sé fyrsti leikmaðurinn sem hefur spilað hérlendis sem hefur verið valinn í landslið í strandhandbolta en það er allavega ekki algengt og Ísland á til að mynda ekki landslið í íþróttinni, hvorki í karla- né kvennaflokki.

Uppfært kl. 21:51 Dyggur lesandi benti á að Ihor Kopyshynskyi hefði lengi spilað með úkraínska landsliðinu í strandhandbolta og var hann til að mynda fjórði markahæstur á Beach Handball Championship árið 2024. Nú er Ihor kominn með íslenskan ríkisborgararétt svo ekki mun hann spila með landsliði Úkraínu hér eftir en samkvæmt heimildum Handkastsins eru forsvarsmenn HSÍ búnir að vera í samskiptum við EHF um mögulegan strandhandbolta hérlendis svo það er spurning hvort við sjáum Ihor með íslenska landsliðinu í strandhandbolta innan örfárra ára.

Handkastið óskar Susanne góðs gengis með liðinu!

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top