Fjórði sigurleikur Gummersbach í röð
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Guðjón Valur Sigurðsson ((Tom Weller / dpa Picture-Alliance via AFP)

Elliði Snær Viðarsson skoraði tvö mörk en Teitur Örn Einarsson ekkert í átta marka sigri liðsins gegn Eisenach í 21.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Gummersbach vann leikinn 35-27 eftir að hafa verið 17-13 yfir í hálfleik.

Um er að ræða fjórða sigur Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í röð en liðið situr sem fastast í 6.sæti deildarinnar með 29 stig, þremur stigum á eftir Kiel sem er í 5.sætinu.

Miro Schluroff fór á kostum í liði Gummersbach og skoraði 12 mörk og Kai Smits skoraði sjö mörk. Julian Köster skoraði sex mörk fyrir Gummersbach. Hjá Eisenach var Felix Aellen markahæstur með sjö mörk.

Eisenach er í 12.sæti deildarinnar með 15 stig, einu stigi á undan Íslendingaliði Erlangen sem á leik til góða.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top