Aldís Ásta heim í KA/Þór
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Aldís Ásta Heimisdóttir (KA)

Aldís Ásta Heimisdóttir mun ganga til liðs við KA/Þór næsta sumar en samkvæmt tilkynningu KA/Þórs á hún von á sínu fyrsta barni í vor og mun þess vegna flytjast heim.

Aldís vann alla titla sem í boði eru hérlendis með KA/Þór áður en hún gekk í raðir Skara í Svíþjóð árið 2022. Hún á auk þess að baki nokkra leiki fyrir A-landslið Íslands ásamt því að hafa leikið fyrir yngri landsliðin en hún lék meðal annars með U-20 ára landsliði Íslands á HM í Ungverjalandi.

Aldís var í lykilhlutverki í liði Skara þar sem hún vann bæði deild og bikarkeppnina ´Svíþjóð með liðinu.

Handkastið óskar Aldísi til hamingju með óléttunu og það er ljóst að koma hennar í KA/Þór mun bæði styrkja norðanstúlkur og deildina í heild.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top