Misjafnt gengi Íslendinganna í Evrópu
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Tumi Steinn Rúnarsson (Harald Dostal / APA-PictureDesk / AFP)

Tumi Steinn Rúnarsson skoraði fjögur mörk í þriggja marka sigri Alpla Hard á Krems í austurrísku úrvalsdeildinni í kvöld. Alpla Hard vann leikinn með þremur mörkum 35-32 eftir að hafa verið 17-16 yfir í hálfleik. Tryggvi Garðar Jónsson komst ekki á blað en var hinsvegar þrívegis vikið af velli og endaði með að fá rautt spjald undir lok leiks.

Alpla Hard fer upp í 3.sæti deildarinnar með sigrinum en þjálfari liðsins er Hannes Jón Jónsson sem hættir með liðið eftir tímabilið.

Tjörvi Týr Gíslason skoraði tvö mörk í þriggja marka tapi Oppenweiler/Backnang í þýsku B-deildinni í kvöld en liðið tapaði gegn Essen á heimavelli 26-29. Tjörvi nýtti bæði skot sín í leiknum en Oppenweiler/Backnang er enn í leit af sínum fyrsta sigri eftir 20 umferðir í þýsku B-deildinni, liðið er nýliði í deildinni en Tjörvi gekk í raðir félagsins frá Bergischer í sumar.

Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar hans í Barcelona unnu 14 marka sigur á Villa de Aranda í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld á heimavelli 41-27. Barcelona var 23-12 yfir í hálfleik en Villa de Aranda er í 12.sæti af 16 liðum í deildinni með 11 stig eftir 18 leiki.

Sveinn Jóhannsson og félagar í Chambery í frönsku úrvalsdeildinni gerðu síðan 30-30 jafntefli á útivelli gegn Toulouse eftir að hafa verið 16-19 yfir í hálfleik. Chambery náðu mest fjögurra marka forskoti í seinni hálfleik en Toulouse reyndust sterkari aðilinn undir lok leiks og það voru Chambery sem skoruðu síðasta mark leiksins.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top