Sjáðu glæsilega stoðsendingu Stivens
Stephanie Wunderl / AFP)

Portúgalska félagið, Benfica sem vinstri hornamaðurinn, Stiven Tobar Valencia leikur með vekur athygli á stórkostlegri stoðsendingu Íslendingsins í leik með Benfica á dögunum.

Þar á hann línusendingu á línumanninn, Fabio Silva aftur fyrir bak eftir að hafa fintað einn varnarmann áður. Fabio Silva nýtti sér sendingu Stivens og skoraði laglegt mark í kjölfarið.

Handkastið greindi frá því í morgun að samningur Stivens hjá Benfica renni út í sumar og gæti hornamaðurinn sem er uppalinn í Val verið á förum frá félaginu í sumar.

Stoðsendinguna og markið er hægt að sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top