Stefán Arnarson (Sævar Jónasson)
Stefán Arnarson hefur framlengt samning sinn við kvennalið Hauka en Stefán hefur stýrt liðinu síðustu þrjú ár ásamt Díönu Guðjónsdóttur. Stefán kveðst hlakka til að halda áfram að vinna með þessum öfluga leikmannahópi og segir hann að Haukar séu nú með ungt lið og að verkefnið sé spennandi. Handkastið sagði frá því á dögunum að Díana Guðjónsdóttir myndi láta staðar numið sem annar þjálfari liðsins eftir tímabilið og því óljóst hver verður Stefáni innan handar á næsta tímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.