Stiven mögulega á förum frá Benfica
Beautiful Sports / Orange Pictures / AFP

Vinstri hornamaður, Stiven Tobar Valencia leikmaður Benfica í portúgölsku úrvalsdeildinni verður samningslaus félaginu eftir tímabilið. Hann gekk í raðir Benfica frá uppeldisfélagi sínu Val sumarið 2023 og er því á sínu þriðja tímabili hjá Benfica.

Samkvæmt heimildum Handkastsins bendir allt til þess að Stiven yfirgefi Benfica eftir leiktíðina en miklar breytingar verða liði Benfica í sumar.

Leikmenn á borð við Gabreil Cavalcanti, Christoffer Hedberg og Taboada eru allir sagðir yfirgefa Benfica í sumar ásamt Stiven.

Benfica eru í 2.sæti úrvalsdeildarinnar í Portúgal með 49 stig, fimm stigum á eftir Sporting sem er á toppi deildarinnar með 54 stig. Auk þess sem Benfica eru í eldlínunni í Evrópudeildinni í riðli með Melsungen, Vardar frá Skopje og Kristianstad.

Stiven vildi lítið tjá sig um möguleg vistaskipti sín næsta sumar þegar Handkastið heyrði í honum en staðfesti samt sem áður að hann yrði samningslaus eftir tímabilið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top