Valur2 (Eyjólfur Garðarsson)
Valur 2 fékk Fram 2 í heimsókn til sín á Hlíðarenda í dag í 19.umferð Grill 66 deildar karla. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiksins en um miðbik fyrri hálfleiks náðu Valsmenn þriggja marka forskoti og leiddu þegar flautað var til hálfleik með tveim mörkum, 18-16. Spennan hélt áfram í síðari hálfleik og voru Frammarar komnir yfir um miðbik hálfleiksins. Þegar fjórar mínútur voru til leiksloka var allt í járnum og staðan, 30-30. Valur voru þó sterkari á lokakaflanum og náðu tveggja marka forskoti, 32-30 en Fram átti síðasta mark leiksins og eins marks sigur Vals staðreynd, 32-31. Matthías Ingi Magnússon var frábær í liði Vals 2 í dag með 11 mörk en hjá Fram 2 var Gabríel Jónsson Kvaran markahæstur með 8 mörk. Jens Sigurðsson var frábær í marki Vals í dag og varði 17 skot. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.