Logi Finnsson - Hannes Grimm (Eyjólfur Garðarsson)
Grótta gerði góða ferð til Vestmannaeyja í 19.umferð í Grill 66 deild karla í dag þegar þeir heimsóttu HBH. Grótta setti í 5.gír í síðari háflleik og reykspólaði fram úr Eyjamönnum og unnum að lokum öruggan 14 marka sigur, 36-50. Grótta heldur áfram að fylgja Víking eins og skugginn og eru liðin jöfn á toppi deildinnar með 34 stig en Víkingur hefur áfram betur í innbirgðis viðureignum liðanna. Bergvin Haraldsson var markahæstur hjá heimamönnum í dag með 11 mörk en hjá gestunum af Seltjarnarnesi var Atli Steinn Arnarson markahæstur með 8 mörk. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.
Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og skiptust liðin á að hafa forskot. Grótta náði þó að síga fram úr þegar fyrri hálfleikur var að klárast og voru með fimm marka forskot í hálfleik, 19-24.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.