Norðurlöndin: Íslendingar í eldlínunni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Arnór Viðarsson (Eyjólfur Garðarsson)

Fjögur Íslendingalið voru í eldlínunni í dag en leikið var í Danmörku og Svíþjóð í dag. Holstebro tapaði í toppslag í Dönsku fyrstu deild kvenna í dag og Íslendingalið Ringsted tapaði gegn Skanderborg í dönsku úrvalsdeild karla í dag.

Katla María Magnúsdóttir leikur með Holstebro sem tapaði í toppslag Dönsku fyrstu deildarinnar en liðið tapaði gegn Ajax frá Kaupmannahöfn 26-22. Katla María Magnúsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Holstebro í dag.

Ísak Gústafsson og Guðmundur Bragi Ástþórsson leika með Ringsted sem var í eldlínunni í dag en liðið tapaði gegn Skanderborg í dag 30-25 en Ringsted situr í níunda sæti dönsku úrvalsdeildarinnar. Ísak og Guðmundur Bragi komust ekki á blað í dag.

Lena Margrét Valdimarsdóttir lék í tapi Skara gegn Vasteras en leikurinn endaði 28-23 fyrir Vasteras. Lena Margrét Valdimarsdóttir komst ekki á blað fyrir Skara í dag.

Arnór Viðarsson skoraði tvö mörk í sigri Karlskrona á Vateras í dag en Karlskrona vann 31-33.

Úrslit dagsins:

Vasteras - Karlskrona 31-33

Vasteras W - Skara W - 28-23

Ajax Kaupmannahöfn W - Holstebro W 26-22

Ringsted - Skanderborg 30-35


Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top