Aníta Björk Valgeirsdóttir (Sævar Jónasson)
Síðasta leik dagsins Í Olís deild kvenna var að ljúka í Garðabæ þar sem Stjarnan og Valur mættust í Heklu höllinni. Valur var með yfirhöndina allan leikinn í dag og var Valur yfir í hálfleik 9-15. Valskonur skiptu um gír í seinni hálfleik og lönduðu að lokum tíu marka sigri. 20-30 og heldur Valur toppsæti deildarinnar. Atkvæðamestar í liði Stjörnunnar voru Aníta Björk Valgeirdóttir með fjögur mörk. Natasja Hammer, Sara Katrín Gunnarsdóttir og Þóra Hrafnkelsdóttir voru allar með þrjú mörk og aðrar minna. Atkvæðamestar í liði Vals voru Þórey Anna Ásgeirsdóttir en hún skoraði sex mörk. Lovisa Thompson varv með fjögur mörk og aðrar minna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.