Stál í stál þegar Hafnfirðingar fóru vestur
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Hörður Ísafjörður (Eyjólfur Garðarsson)

Hörður fékk Hauka 2 í heimsókn á Ísafjörð í dag í 19.umferð Grill 66 deildar karla.

Harðar menn höfðu undirtökin í upphafi leiksins og leiddu meirihlutann af fyrri hálfleik en það var þó undir lok fyrri hálfleik sem Haukar 2 náðu að koma sér yfir og leiddu með einu marki þegar liðin gengu til búningsherbergja, 13-14.

Haukar 2 héldur áfram að vera með frumkvæðið í leiknum í síðari hálfleik og leiddu á tímabili með fjórum mörkum í síðari hálfleik. Harðarmenn náðu þó að bíta í skjaldarrendur og vinna sig aftur inn í leikinn og þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum leiddu heimamenn með einu marki, 27-26.

Haukar 2 jöfnuðu leikinn, 27-27, þegar vær mínútur voru eftir af leiknum og þar við sat en hvorugt liðið náði að skora sigurmarkið og jafntefli því niðurstaðan í þessu æsispennandi leik.

Guilherme Carmignoli De Andrade var markahæstur Ísfirðinga í dag með 8 mörk en hjá Haukum 2 var Daníel Wale Adeleye með 11 mörk.

Sjáðu stöðuna í deildinni

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top