ÍR ((Eyjólfur Garðarsson)
Bjartur Fritz Bjarnason skoraði á föstudaginn sitt fyrsta mark í Olís-deild karla í sínum fyrsta leik í Olís-deildinni. Bjartur sem er fæddur 29. mars árið 2010 var samkvæmt lauslegum útreikningum Handkastsins 15 ára og 328 daga gamall á föstudaginn þegar hann lék sinn fyrsta leik og skoraði fyrsta markið sitt. Hann fékk tækifæri á vítalínunni seint í leiknum en skot hans fór í báðar markstangir Valsmanna áður en boltinn skaust út. Það þarf sennilega ekki að segja þér lesandi góður en Bjartur er sonur Bjarna Fritzsonar þjálfara ÍR og yngri bróðir Baldurs Fritz Bjarnasonar leikmanns ÍR sem eru í bullandi fallbaráttu, á botni Olís-deildarinnar með sjö stig þegar þrjár umferðir eru eftir. ÍR tapaði leiknum gegn Val 41-31 á heimavelli og fékk Bjartur tækifæri undir lok leiks. Brynjar Narfi Arndal, jafnaldri Bjarts var yngsti leikmaðurinn í sögu efstu deildar á Íslandi tl að skora er hann skoraði í 36-30 sigri FH gegn ÍBV í 3.umferð Olís-deildarinnar á síðasta ári. Brynjar Narfi var þá 15 ára og 81 dags gamall. Brynjar Narfi kom við sögu í sínum fyrsta leik í efstu deild á síðustu leiktíð og varð þá yngsti leikmaðurinn í sögu efstu deildar til að koma inná. Selfyssingurinn Ragnar Jóhannsson átti metið áður. Ragnar var 15 ára og 138 daga gamall er hann skoraði fyrir Selfoss í leik gegnum Haukum á Ásvöllum 12. mars 2006. Þriðji yngsti leikmaðurinn til að skora í efstu deild er síðan annar FH-ingur, Aron Pálmarsson en hann var 15 ára og 223 daga gamall er hann skoraði í leik FH og ÍBV 1. mars 2006. Mark Bjarts má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.