Elín Rósa Magnúsdóttir (INA FASSBENDER / AFP)
Andrea Jacobsen skoraði þrjú mörk og gaf þrjár stoðsendingar í jafntefli Blomberg-Lippe gegn ungverska liðinu MOL Esztergomi í síðustu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar sem fram fór í dag. Lokatölur 31-31 í jöfnum og spennandi leik þar sem Esztergomi leiddi í hálfleik 13-15 en leikurinn fór fram í Þýskalandi. Ungverska liðið náði mest fjögurra marka forystu í seinni hálfleiknum en Blomberg-Lippe komu til baka og jöfnuðu metin í 24-24. Íslendingaliðið komst einu sinni yfir í leiknum í stöðunni 27-26 en lokatölur 31-31. Leikurinn skipti hvorugu liðinu máli upp á framhaldið í keppninni. Ungverska liðið var þegar búið að tryggja sér áfram í keppninni á meðan ljóst var að Blomberg-Lippe kæmist ekki upp úr riðlinum. Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði eitt mark í leiknum en Elín Rósa Magnúsdóttir komst ekki á blað í leiknum. MOL Esztergom og Nykøbing Falster komust bæði upp úr riðlinum með 9 og 7 stig en Blomberg-Lippe ásamt franska liðinu Chambray Touraine enduðu með fjögur stig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.