Janus Daði ekkert leikið eftir EM
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Janus Daði Smárason (JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP)

Janus Daði Smárason leikmaður Pick Szeged í Ungverjalandi og íslenska landsliðsins hefur ekkert leikið með Pick Szeged eftir að Evrópumótinu lauk í byrjun febrúar.

Pick Szeged hefur leikið fjóra leiki eftir áramót, unnið þrjá en tapaði sínum fyrsta leik á árinu gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu í vikunni.

Janus Daði sagði í samtali við Handkastið að hann vonist til að geta snúið aftur á völlinn í næstu viku en liðið fer til Parísar og mætir þar Paris Saint Germain í 12. umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar en þrjár umferðir eru eftir af riðlakeppninni. Pick Szeged er í 4.sæti riðilsins með 10 stig en PSG er í 5.sætinu með átta stig, jafn mörg stig og GOG sem er í 6.sætinu.

Janus Daði sagði í samtali við Handkastið að hann hafi lent í hnjaski í bronsleiknum gegn Króatíu á Evrópumótinu þar sem öxlin hafi farið illa. Hann hafi ekkert verið með á boltaæfingum hjá Pick Szeged eftir Evrópumótið en vonist til að geta farið að beita sér aftur í næstu viku.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top