Magdeburg komnir aftur á sigurbraut
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ómar Ingi Magnússon SC Magdeburg ((Marco Wolf / dpa Picture-Alliance via AFP)

Fjórir leikir voru á dagskrá í dag er 22.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar gekk í garð.

Fyrsti leikur dagsins fór fram í Getec Arena heimavelli Íslendinga liðs Magdeburg þegar Minden komu í heimsókn. Magdeburg keyrði á Minden sem réðu ekkert við ríkjandi evrópumeistara sem unnu 38-21 þegar staðan í hálfleik var 21-11. Ómar Ingi skoraði 8 mörk og Gísli Þorgeir 1.

Seinni leikur dagsins fór fram í Hamburg er Hamburg bauð Melsungen í heimsókn. Leikurinn var jafn og skemmtilegur þar sem óvenju lítið af mörkum voru skoruð. Liðin skiptust á að taka nokkurra marka forskot. Leikurinn endaði í tveggja marka sigri heimamanna 25-23. Einar Þorsteinn skoraði 1 mark fyrir Hamburg á meðan Arnar Freyr skoraði 1 mark fyrir Melsungen. Reynir Þór komst ekki á blað.

Þriðji leikur dagsins fór fram í Stuttgart þegar Stuttgart bauð Hannover Burgdorf í heimsókn. Stuttgart hafði yfirhöndina allan leikinn en Hannover hélt sér alltaf í þeim. Leikurinn endaði með eins marks sigri Stuttgart 35-34. 

Fjórði og síðasti leikur dagsins fór fram þegar lærisveinar Arnórs Þórs í Bergischer tóku á móti Füchse Berlin. Bergischer stóð ágætlega í Berlínar mönnum en síðan gengu Berlínar menn á lagið. Lokatölur 28-35. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Tim Freihöfer með 11 mörk.

Úrslit dagsins:

Magdeburg-Minden 38-21

Hamburg-Melsungen 25-23

Stuttgart-Hannover Burgdorf 35-34

Bergischer-Füchse Berlin 28-35

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top