Tók þá ákvörðun að vel athuguðu máli að ég vildi ekki halda áfram
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sebastian Alexandersson (Sævar Jónasson)

Nýlega var það tilkynnt að Sebastian Alexandersson myndi ekki halda áfram sem þjálfari kvennaliðs Víkings í Grill 66 deild kvenna á næsta tímabili en hann var ráðinn þjálfari liðsins á vormánuðum 2024 og er því á öðru tímabili sínu með liðið. Víkings liðið situr í 3. sæti Grill 66 deildar kvenna en Eva Hrund Harðardóttir tekur við af honum í sumar sem þjálfari liðsins.

Við heyrðum í Basta og lögðum fyrir hann nokkrar spurningar.

Nú á dögunum var tilkynnt að þú myndir hætta með kvennalið Víkings eftir tímabilið. Þú varst ráðinn vorið 2024 og ert því að klára þitt annað tímabil. Hvað kemur til að þú sért að hætta?
Það er tvíþætt. Í fyrsta lagi þá var samningurinn til tveggja ára og hann rennur því út 31.05.26 og í öðru lagi þá tók ég þá ákvörðun að vel athugðu máli að ég vildi ekki halda áfram. 

Hvernig líturðu á þessi 2 tímabil hjá félaginu?
Mjög vel og er stoltur af þessum tíma. Þetta er vissulega mjög krefjandi verkefni reyndar eins og öll verkefni sem ég hef tekið að mér og ég ætla ekki að ljúga að það tekur mikinn toll af manni að vera í þessum verkefnum. En liðið hefur tekið mjög miklum framförum í líkamlegu formi, varnarleik og almennum leikskilningi. Sóknarleikurinn er vissulega endalaust verkefni sem gengur misvel en það er bara eðlilegt þar sem ég set leikmenn í stöður þar sem þeir þurfa að taka sjálfstæðar ákvarðanir og bera ábyrgð á þeim.
Ég er hrifnari af þessari aðferð sem er klárlega seinvirkari og erfiðari leið í þjálfun en á móti býrðu til betri leikmenn til lengri tíma. Þá er ég mjög ánægður með það að margir einstaklingar í liðinu hafa tekið stór stökk í færni og aðrir fundið sitt gamla góða sjálf aftur. En kannski er ég mest ánægður með það að sumir leikmenn í liðinu hafa tekið ákvörðun um að gefa allt í það að komast langt og það er ekki lítil ákvörðun því að þá þarftu að forgangsraða lífinu út frá boltanum m.t.t. vinnu, náms og frítíma með vinum og vandamönnum án þess að vita hvort þér takist að ná markmiðinu. Það þarf hugrekki til þess að gera það eins og þjóðfélagið er í dag.

Hvernig finnst þér deildin hafa spilast í vetur? Hefðirðu viljað þjarma meira að Gróttu og HK?
Hún hefur spilast eins og ég bjóst við en það eru samt óvæntir hlutir þarna líka. Auðvitað var planið að veita HK og Gróttu meiri keppni en í fullri hreinskilni þá eru þau bara skrefi á undan okkur og öðrum liðum í deildinni. Heimaleikirnir við Gróttu voru reyndar alvöru spennuleikir þar sem sigurmörkin komu á síðustu sekúndunum en við höfum hins vegar ekki ennþá náð að spila spennandi leik gegn HK. Höfum reyndar verið mjög óheppin með meiðsli og fjarveru lykilleikmanna í vetur og þá sérstaklega hjá markmönnunum okkar en það er allt partur af leiknum svo að það er ekki hægt að fela sig á bakvið það.

Værirðu til í að sjá breytingar á einhverju fyrirkomulagi í kvennaboltanum? Til að mynda að fjölga upp í 10 lið í efstu deild svo dæmi sé tekið?
Algjörlega sammála því en ég vill ganga lengra og hafa bara eina deild fyrir alla sem vilja taka þátt og svo aðra deild fyrir þá sem ætla ekki að vera á þeim „stað“, þ.e.a.s. séu einhver lið eftir til þess. Ég tel það bestu leiðina til þess að auka áhuga og metnað félaga sem ætla að vera með og fjölgar leikmönnum sem vilja leggja eitthvað á sig. Eins og þetta er núna þá ertu með nokkur lið í Grillinu þar sem þú ert kannski með einhverja leikmenn sem vilja „meira“ en félagið hefur ekki lagt í þá vinnu að búa það umhverfi til og hvað gera þeir þá. Þeir reyna að komast í Olísdeildina og ef þeim tekst það og lenda svo á vegg þar þá hætta þeir. Nú ef þeir fara ekki þá leið þá fjara þeir út í umhverfi sem er ekki að endurspegla þeirra metnað á þeim tíma og á endanum hætta þeir. Niðurstaðan er sú sama, fækkun iðkenda. Nú er ég bara að lýsa því sem hefur verið að raungerast. Vissulega sé ég ákorunina við þetta fyrir 2-4 bestu lið landsins að „þurfa“ að spila við þessi lið en haldið þið að Magdeburg eða Kiel hafi ekki lent í þessu í sinni deild. Ég man eftir leik þar sem Kiel vann leik í deildinni 44-16 þegar þeir voru bestir í þýskalandi. Ekki var Kiel að óska eftir því að vera ekki í deild með því liði. Hins vegar það sem fæst með þessu er að liðin í botninum fá alltaf leiki við jafningja og geta þannig bætt sitt umhverfi og leikmenn án þess að þeir séu að alltaf að missa leikmenn í Olísdeildina. En ég hef engar áhyggjur af þessu. Þeir sem ráða þessu munu taka ákvörðun sem tíminn leiðir svo í ljós hvort er rétt.

Ertu að hugsa um að taka þér pásu frá þjálfun eða ertu að leitast eftir nýrri áskorun og nýju liði?
Nú er ég búinn að þjálfa í 33 ár og þar af 23 í meistaflokki án þess að stoppa. Ég hef þjálfað mikið og oft marga flokka í einu á þessum tíma. Iðkendurnir sem ég hef unnið með eru klárlega yfir 1000 á þessum tíma. Hvert einasta ár er skipulagt útfrá leikjaniðurröðun og hvenær undirbúningstímabilið hefst. Ég hef sleppt fullt af viðburðum, ráðstefnum og vinnuferðum erlendis útaf þessu. Svo ég verð að segja að pása hljómar rosalega vel núna. Ég hef reyndar þegar fengið símtöl en ég er er ekki hugsa um neitt annað en að klára tímabilið eins vel og ég get með Víkingi. Verkefnið mitt var að reyna að koma liðinu í Olísdeildina og þótt við séum klárlega ekki að fara beint upp þá er ennþá tækifæri til þess að vinna umspilið. Á meðan það tækifæri er til staðar þá trúi ég því að að við munum ná því við markmiði. Nú ef það tekst ekki þá a.m.k. getum við litið inná við sem lið og sagt: Við gerðum allt sem við gátum.

Það verður gaman að sjá hver næstu skref Basta verða. Hvort hann fari í pásu frá þjálfun eða fari í nýtt lið.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top