Bjarni Ófeigur Valdimarsson (Egill Bjarni Friðjónsson)
Langbesti leikmaður KA á tímabilinu, Bjarni Ófeigur Valdimarsson lék ekki með KA gegn ÍBV í 19.umferð Olís-deildar karla í gær. Bjarni Ófeigur varð fyrir því óláni að meiðast á fingri í tapi liðsins gegn Val í 18.umferðinni. Framundan er undanúrslitaleikur liðsins gegn ÍR á fimmtudagskvöldið klukkan 20:15 og standa KA-menn á öndinni og vona það besta en Bjarni Ófeigur hefur skorað 147 mörk fyrir KA í Olís-deildinni og er lang stoðsendingarhæsti leikmaður deildarinnar með 121 stoðsendingu. ,,Ég er með beinflís og slitið liðband í putta. Ég hef verið í spelku frá því að þetta gerðist í leiknum gegn Val og ekkert æft síðan. Við erum að reyna hlúa eins vel að þessu og við getum meðvitaðir um mikilvægi leiksins gegn ÍR í undanúrslitunum. Það verður hreinlega að koma í ljós hvort ég geti spilað á fimmtudaginn," sagði Bjarni sem segir það flækja málin að þetta sé á hægri hendi og því snúist um þetta hversu vel er hægt að búa um fingurinn án þess að þetta trufli hann. Bjarni Ófeigur er ekki eini leikmaður KA sem er á meiðslalistanum því Norðmaðurinn, Morten Boe Linder fór úr axlarlið í leik KA gegn Val og var ekki í leikmannahópi KA gegn ÍBV í gær sem KA vann með einu marki. Andri Snær Stefánsson þjálfari KA sagði í samtali við Handkastið í síðustu viku ólíklegt væri að Morten Linder gæti leikið í undanúrslitaleiknum gegn ÍR.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.